.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

laugardagur, janúar 31, 2004

það sem ég er búin að hafa það gott í dag. úff. maður verður bara örmagna við þetta. partýið heppnaðist bara ljómandi vel. það var fiskrétturinn sem varð fyrir valinu, og sem betur fer þá voru nokkrir sem afboðuðu komu sína svona á síðustu klukkutímunum, því annars hefði ég verið étin út á gaddinn. það hefði mér nú þótt verulega leiðinlegt. síðustu gestirnir stauluðust héðan út klukkan eitt í nótt minnir mig, en þá vorum við líka búin að vera saman í 17 klst. svo þetta var nú bara komið ágætt. við byrjuðum sem sagt á því að fara niður í mjódd strax eftir vinnu, og skoða þar nýtt ct tæki sem domus fólkið er búið að koma þar upp. það er alveg magnað hvað er hægt að gera með þessum tækjum orðið og vinnustöðunum sem eru notaðar til úrvinnslu á myndunum. váaaaa. myndirnar er svo ótrúlega flottar og maður situr bara og slefar. gosh. langar bara að fara að leika sér að þessu. hehehe. sem sagt þegar hún birna var búin að fræða okkur um nýja tækið sitt, þá fórum við beint heim til mín, sumir að vísu stoppuðu í vínbúðinni til að geta skolað niður matnum. ég auðvitað skveraði saman matnum á mettíma, og þetta var allt saman rosalega gott og gaman. hún ragnheiður er alveg hryllilega fyndin. vitleysan sem dettur upp úr henni er alveg með ólíkindum. ég var hérna í krampakasti á tímabili. maggi fór snemma því hann var að fara til kanarí núna í morgun, og var alveg sannfærður um að hann þyrfti að gera svo mikið áður en hann færi. gyða kom þegar líða tók á kvöldið með hendina í fatla. hún er nú samt öll að koma til. jónína var hérna með okkur, og svo auðvitað birna, hún getur nú líka verið launfyndin. róbert kom beint af hestbaki, reyndar var hann nú búin að fara heim í millitíðinni, siggi kom líka, og er með ofnæmi fyrir köttum. var nú samt ekkert að segja mér frá því. hehehe svo þegar annað augað var allt orðið rautt, þá loksins glopraði hann því út úr sér. ég lokaði gorm þá auðvitað inn í herbergi og honum leið nú strax betur á eftir. magga ingva var að sjálfsögðu á staðnum og agnes ekki má gleyma henni. já og guðbjörg nú og hjörleifur. hmmm ég held ég´sé ekki að gleyma neinum, það er þá allavega ekki með vilja gert. alla vega skemmti ég mér alveg ljómandi vel. :)

ég er sem sagt búin að gera ekkkkkerrt í dag. hehe. ok það eru nú kannski ýkjur. vaska upp og glatta yfir gólfið, læra, komast að því að ég ætti enga peninga, og horfa á eina vampíru mynd. shadow of the vampire. hún var bara fín. nú er ég að spá í að fara bara að horfa á fleiri myndir. þetta er ekta svoleiðis dagur. gæti líka alveg hugsað mér að sofna aðeins. hhhmmmmm það hljómar nú alltaf svolítið vel :) þá fer maður bara upp í rúm með tölvuna horfir á mynd og sefur yfir henni, þá er maður búin að afkast alveg heilmiklu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home