.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

þriðjudagur, desember 19, 2006

hvahhh það er nóóóóógur tími

komin nítjándi, styttist í tuttugastaogfjórða. enn á ég eftir að kaupa allar jólagjafir nema fyrir SM og svo er rebekka að útskrifast á morgun, sem minnir mig á að ég var búin að lofa að baka eitthvað. á morgun er líka jólaball í skólanum hjá strákunum, og það er leikrit í dægradvölinni eftir hádegið, held við sleppum nú fótboltaæfingunni um kvöldið þar sem hún bara rúmast ekki líka inn í dagskránna, nema að einhverjum klst verði bætt við sólarhringinn.

annars finnst mér verst að geta ekki verið í búðinni. ég var þar í nokkra klst í gærdag, þar sem við vorum svo almennilegar að gefa henni rebekku frí, og það var svo gaman. fullt að gera, og bara allt svo æðislegt. langar að vera meira þar en það bara virkar ekki. ég verð bara að láta mér nægja að vera með hvatningar til þeirra í gegnum síma og sms. í dag er hinn starfsmaðurinn í fríi svo ég reyni að kíkja niður eftir aðeins á eftir. you go girls

3 Comments:

At 5:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Drektu Cult þeir fullyrða í kynningarefni að með því að drekka glundrið frá þeim sé sólarhringurinn 25 klst !!!!!

 
At 12:22 f.h., Blogger Harpa Dis said...

hví ekki. svo ef ég drekk bara nógu mikið af því þá lengist hann kannski bara enn meira....

 
At 9:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ef þið vissuð það ekki þá er sólahringurinn 25 klst skv okkar eigin biological clock

 

Skrifa ummæli

<< Home