.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

mánudagur, desember 11, 2006

minn stóri munnur

jæja... sko.. ég er alveg miður mín núna. ég er alltaf að koma mér í einhver vandræði eða svona þannig. ég semsagt komst að því að það er einhver annar en bylgja og róbert sem lesa þessa síðu mína. ég hef hingað til bara tjáð mig hér svo gjörsamlega viss um að hingað komi ekki nokkur maður (fyrir utan þessar fyrrnefndu elskur), en ég sem sagt hef ekki haft rétt fyrir mér í þeim efnum.

hingað kom grýla. í allri sinni mynd. og hún hafði athugasemdir um færslu sem ég skrifaði hérna í nóvember. eitthvað var ég nú frekar uppstökkari en vanalega þann daginn, og var að tala um nöfn á búðum. ég byrjaði það umtal nú frekar almennt, sumsé á þeim nótum að ég hefði komist að því að maður mætti opna búð og kalla hana svo til hvaða nafni sem er, jafnvel þó svo að það sé til sambærileg búð með sama nafni. ég fer ekkert ofan af því að mér finnst það frekar leim ef svo má að orði komast. hvort sem ég á hlut í máli eður ei. en það var mjög fjarri mér að móðga grýlu eða nokkurn annan úr þeirri ágætu fjölskyldu, og ef ég hef gert það þá biðst ég innilegrar afsökunar á því.

ég má nú til með að segja samt að það var ekki að ástæðulausu sem ég var pirruð yfir þessu. ég hafði nefnilega slegið inn í ja.is jólahúsið.... (hvað gerir maður ekki þegar manni leiðist heima hjá sér) og viti menn... þá kom líka upp Jólahúsið Sléttu Akureyri. í kjölfarið á því fórum við að kanna þetta, hvort að aðrir mættu kalla sín fyrirtæki sama nafni og er á okkar fyrirtæki... og tjáði mig um það hér í kjölfarið. þetta var semsagt ástæðan fyrir því hversu grumpy ég var þann daginn, og biðst enn og aftur afsökunar ef ég hef móðgað einhvern með gáleysislegu pikki mínu hér.

2 Comments:

At 10:33 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

þú að móðga...góður. Þetta grumpy blogg hefur alveg farið fram hjá mér. Ertu til í að skrifa það aftur

 
At 9:50 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég las þennan póst og hann var réttur hjá þér..ekkert grumpy heldur sannleikurinn á ferð.. grýla hefur eitthvað breyst frá því áður var ef hún fer í fýlu svo auðveldlega og þar fyrir utan ef fólk hefur ATHUGASEMDIR þá á það að koam fram undir RÉTTUM nöfnum og hana nú
Anna Kristín aka Meinvill

 

Skrifa ummæli

<< Home