jæja nú var ég að skríða í hús, gummi krútt kom og skutlaði mér heim, því ég nennti ekki með nokkru móti að labba (enda frétti ég eftir á að það væri tveggja stiga frost, hrollur. óvissuferðin heppnaðist með besta móti, enda er þetta eðalfólk sem sá um að skipuleggja ferðina. það var sungið og trallað, borðað, drukkið, synt, drukkið meira og borðað meira, og dansað og sungið enn meir. fórum svo í heimahús, því við auðvitað gátum ekki hætt, en þar datt ég út eitt augnablik, ekkert alvarlega samt. heyrði og fann þegar breitt var yfir mig, og þegar fólk var að tínast á players, en ég bara gat ekki meir, enda hafði ég vaknað klukkan fjögur um morguninn og var orðin ansans ári þreytt. en hafði loks rænu á að koma mér heim til mín, og ætla nú að fá mér smá kríu, því það styttist í að strákarnir fari að vakna. úffffffff
fimmtudagur, maí 20, 2004
fyrri skrif
- ég fór með arnar til augnlæknis. ég var farin að ...
- jæja þá er búið að gifta fredrik og mary, og ólafu...
- úfff ég hrökk aftur við núna þegar ég opnaði þetta...
- ég gleymdi sem sagt að minnast á það að þann níund...
- almáttugur hvað kom fyrir ????!!!!!?????? ég veit...
- þar sem meinvill segir á sinni síðu frá konukvöldi...
- mér finnst að barnapíur eigi ekki að þurfa að fara...
- þetta var alveg yndislegt brúðkaup. það var mjög ...
- ég er næstum viss um að ég skrifaði eitthvað hérna...
- það sprakk í bílnum mínum í dag. sem er nú allt í...
gestabók
endilega tjáið ykkur
síður
Jólahúsið
Réttritun.is
Raförninn
tenglar
ágúst
anna kristín
bylgja
róbert
freknukrúttið
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home