.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

laugardagur, maí 29, 2004

er ég ekki komin á þetta svakalega leiðinlega lyklaborð á akranesi. sem betur fer tekst mer alltaf að gleyma því inn á milli, því ég er ekki viss um að ég myndi nenna að koma og vinna hérna ef ég myndi eftir þessu. annras er ég að spá í að senda honum ásgeiri tölvupóst, og ath hvort það sé ekki hægt að setja upp þráðlaust net út í bústað fyrir okkur tölvufíklana. þá gæti ég legið upp í rúmi og verið í tölvunni, alveg þangað til á mánudag þegar ég færi heim. tókst nú reyndar að liggja í rúminu núna í eina 16 klukkutíma. ég svaf þánú ekki alla, en ég held ég hafi verið við það að fá legusár. ææææ. hefði þurft að hafa með mér einhvern félagsskap hingað upp eftir. ég auglýsi hér með eftir honum :)

annars vorum við gummi búin að ráðstafa helginni fyrir mig. hann ætlaði að lána mér flakkarann sem inniheldur aragrúa af tónlist, og ég ætlaði að eyða helginni í að setja inn á tölvuna mína einhverja eðaltónlist til aðhlusta á. svo um leið ætlaði ég auðvitað að taka hnefafylli af dvd myndum hjá þeim, til að horfa á,komm on þetta eru nú 2-3 sólarhringir sem ég verð hérna. en viti menn þegar ég var að koma mér af stað, þá var gummi í keflavíkurtúr, og sigga í ísafjarðartúr. þvílíkur bömmer. þannig að ég for uppeftir með nákvæmlega enga afþreyingu. er búin að ganga hér um allar götur bæjarins, (þrátt fyrir að vera búin að eyða 16 af 21 tíma í rúminu) búin að fara inn í allar verslanir hérna. var rétt að staulast inn í bókabúðina í gær þegar ég fekk útkall, og hún er lokuð núna svo ekki fékk ég bók að lesa. ég get auðvitað dundað mér við að skoða einhverjar gamlar röntgenmyndir, það er nú alltaf gaman. hehe. jæja best að reyna að detta um eitthvað matarkyns einhversstaðar, áður en ég fer að skreppa eitthvað saman hérna :)

vi ses

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home