.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

fimmtudagur, júlí 01, 2004

ég er komin með nýjan rafgeymi. liggaliggalái. nennti ekki að standa í þessu lengur að vera aldrei viss um hvort greyið færi í gang eða ekki. það er sem sagt bíllinn en ekki ég sem er með nýjan geymi. svo nú er bara að leggja land undir fót í fríinu. hehehe je ræt. síðasti vinnudagurinn í bili rennur upp á morgun. ég er að baka í tilefni dagsins. jú við erum nefnilega svo miklir gleðipinnar þarna í vinnunni, að við notum öll möguleg sem ómöguleg tækfæri til að hópa okkur saman og gleðjast. og það er nú full ástæða til að gleðjast yfir því að vera að fara í frí ekki satt. svo við í starfsmannaráðinu ætlum að baka kökur, og kaupa brauð og eitthvað smálegt og hafa kaffi. svo þegar allir eru vel mettir af rjómanum, þá ætlum við að gera líkt og í fyrra, og skunda í tívolí. hehehe. það er góð blanda. síðast blönduðum við rjómann með bjór áður en við fórum niður eftir. það er auðvitað bara tóm snilld. reyndar klikkuðu þeir á aðaltækinu núna, svo þetta verður ekki hálft eins gaman nú og var þá.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home