nenni ekki að þaga lengur
eftir að hafa verið heima í gær og fyrradag og reynt að þaga eftir bestu getu, hef ég núna formlega gefist upp á þeirri aðferð, og er farin að hrella sjúklingana og samstarfsfólk mitt á nýjan leik. annars koma strákarnir mínir til mín á eftir og við ætlum að fara saman í strætó upp á akranes og vinna. tökum bakvakt eina nótt svo stelpurnar geti farið að djamma. það verður örugglega bara notalegt að kúra saman þar, horfum á sjónvarpið og lesum kannski bók, förum út að labba, getum sínt arnari leikskólann sem ágúst var á þegar hann var lítill og svona. stemming.