.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

laugardagur, janúar 01, 2005

kæru vinir....

Happy New Year

gleðilegt ár og hjartans þakkir fyrir það gamla...

vona að nýja árið verði ykkur gæfuríkt. Heart Glasses






miðvikudagur, desember 29, 2004

jæja ég held þetta ætli að takast hjá mér.... þ.e. að verða ekki veik.... hálsbólga... eyrnaverkur og hósti frá helv.... hristi það nú af mér á no time.

annars gerist ósköp fátt....

þriðjudagur, desember 28, 2004

gleðileg jól elskurnar. takk fyrir allt gamalt og gott.

það er nú engin smá jólagleði hjá stórfjölskyldunni. það eru allir veikir. bjössi byrjaði á jóladag og síðan hefur einn af öðrum lagst í rúmið. ég og strákarnir erum þau einu sem stöndum enn. ég fékk neyðarkall frá blásölum 20 í hádeginu.... mayday mayday... allur matur búinn... stopp... þurfum fóður... stopp....

jú ég auðvitað fór í björgunargallann, brunaði út í búð og keypti helstu nauðsynjar eins og pepsi max og beiskan brjóstsykur. fór svo í sjúkravitjun. var nú að spá í að skilja matinn bara eftir á stéttinni.... ætlaði ekki að þora inn í þetta pestarbæli... en lét mig nú hafa það... bjössi sat og barmaði sér yfir því að vera ekki í vinnunni....

mamma og pabbi liggja líka fárveik heima og eins sigga gummi og gísli.... hvurslags eiginlega heilsufar er á þessu fólki.

annars gengur lífið sinn vanagang. vinna sofa borða...... eða reyndar aðallega vinna.... matarlystin er eitthvað aumingjaleg og svefninn enn síðri en svona er lífið tímon.