.comment-link {margin-left:.6em;}

í dagsins önn...........

hugleiðingar mínar

fimmtudagur, júní 24, 2004

það var húsfundur hjá okkur í kvöld. aðalumræðuefnið var sem sagt lokun svala. hhmmm fyrir þá sem ekki skilja þá er verið að tala um að setja svona glerveggi á svalirnar, svo þær nýtist betur. þar sem að fólk er að kvarta undan roki á svölunum hjá sér. jújú ég skal nú alveg viðurkenna það að það væri nú huggulegt að hafa svona á svölunum, myndi svona aðeins stækka íbúðina hjá manni. en boy ó boy vitiði hvað þetta kostar. ja svona á bilinu 500 - 600 þúsund. og það er auðvitað með afslætti. halló!!!!! sem betur fer er hverjum og einum í sjálfsvald sett hvort hann lætur verða af þessu eða ekki. annars væri ég nú í vondum málum jeminn. ég sem á í vandræðum með að kaupa mér rafgeymi í bílinn. hehe

annars lét ég nú verða af því að fara í klippingu í dag. það urðu nú svo sem engar róttækar breytingar á mér, en svona það er eitthvað við það að fara í klippingu. alltaf svona svolítið notalegt. hefði nú viljað skvera smá lit í mig líka, en sleppti því í þetta skiptið. hárvöxturinn hjá mér er ekki alveg innan marka. þvílík spretta. hefði nú viljað að eitthvað af þessari sprettu hefði farið í lengdina á mér sjálfri. en hvað um það fyrst ég var komin í hafnarfjörðinn á annað borð, brunaði eftir strandgötunni nýklippt og ánægð með mig, þá tróð ég bílnum inn í næsta stæði, (keyrði sem sagt eina 10 metra held ég) henntist út úr bílnum, inn í búð, og kom út með brjóstahaldara. hef aldrei verið svona fljót við svoleiðis gjörning. þessi búð er bara tóm snilld. ekki eitthvað svona one size fits all dæmi. huh! hef einu sinni verslað þarna áður, n.b. það var í júní í fyrra. hehe. tautaði við konuna að ég hefði nú keypt mér svona (og benti á ákveðna tegund) en var svo óheppin að það brotnaði svona plaststykki á hlýrunum. hey það er ekkert mál. komdu bara með hann við lögum hann fyrir þig. ég var svo bit. aldrei hefði mér dottið í hug að fara með hann í búðina og láta gera við hann. ég hef ekki hugmyndaflug í svoleiðis lagað. en sem sagt, nú fer ég einhvern næstu daga aftur í hafnarfjörðinn og læt gera við. tralalala þvílík sæla.

þriðjudagur, júní 22, 2004

við vorum með fjölskylduskemmtun í guðmundarlundi í dag. við er sem sagt starfsmannafélag hjartaverndar stóð fyrir fj.ske. það var bara ljómandi fínt. frábært veður og allir í stuði. vorum með ratleik, sem heppnaðist mjög vel. hann fór þannig fram að´hópnum var skipt í sex lið, og hver hópur átti að leysa sitt verkefni. við þurftum að hlaupa um allt og leita að hráefni og hlutum sem voru svo notaðir til grilla pylsur, og búa til eftirrétti. mjög sniðugt.

að öðru leiti gengur lífið sinn vanagang. vinna, borða, sofa.

sunnudagur, júní 20, 2004

ég er búin að hlaupa á eftir honum arnari núna í tvo daga og það er allt henni systir minni að kenna. jú, hún gaf honum hjól í jólagjöf, og við erum sem sagt búin að vera að æfa okkur að hjóla, eða öllu heldur hann að hjóla og ég hleyp á eftir honum. annars var það mjög sterkur leikur hjá mér núna áðan, leyfði honum nefnilega að hjóla til pabba síns. hehehe. þannig að nú getur hann tekið við að hlaupa á eftir honum.

annars hefur þetta nú verið frekar tíðindalítil helgi. gott veður, allavega volgnar manni vel við að hlaupa úti í þessum hita. voru nú heilar nítján gráður á mælinum hjá nettó í gær. það er nú bara þokkalegur dagur ekki satt. en nú taka við heimilisstörfin, sem sagt þetta hefðbundna þegar ég sé fram á heila viku í einsemd, þá á að skipta á rúmunum, aðeins að snurfusa svona í kringum sig. dóh ég nenni því ekki!!!!!! vantar svona sjálfhreinsibúnað bæði í íbúðina og bílinn.